Gul messa
The Church in Ytri-Njarðvík, Brekkustígur 13, 260 Ytri-Njarðvík Directions
Sun Sep 20 2026 17:00
💛 Gul messa – Vonin sem vakir í myrkrinu 💛
Sunnudaginn 20. september kl. 17:00 verður Gul messa í Ytri-Njarðvíkurkirkju í tilefni af Gulum september.
Í messunni gefum við rými fyrir sorgina, minningarnar og allt það sem erfitt getur verið að bera — en um leið fyrir vonina, ljósið og samfélagið. Enginn á að þurfa að standa einn í myrkrinu.
Sr. Helga þjónar og Kór Njarðvíkurkirkju syngur undir stjórn Rafns. Oddný Jónsdóttir kynnir starf Píeta samtakanna.
Boðið verður upp á fallega tónlist, hugvekju, kertastund og bænir. Við kveikjum ljós, minnumst þeirra sem við söknum og stöndum saman með þeim sem eiga um sárt að binda.
Vonin sem vakir í myrkrinu.
📍 Ytri-Njarðvíkurkirkja
📅 Sunnudagurinn 20. september
🕔 Kl. 17:00
Öll hjartanlega velkomin. 💛