HamingjuJógaNidra í Hellisgerði
Hellisgerði Hafnarfirði, Skúlaskeið, 220 Hafnarfjörður Directions
Sat Sep 12 2026 12:00
Miðvikudaginn 9. september kl. 17:00 – lautin við Skúlaskeið 🌱
Gefðu þér stund til að staldra við og næra líkama og huga í fallegu umhverfi Hellisgerðis þegar Kristjana Jökumsen hjá Hugur í hjarta leiðir þátttakendur í róandi HamingjuJógaNidra á Hamingjudögum í Hafnarfirði 🧘
Jóga Nidra er djúpslökunaraðferð sem hjálpar líkama og huga að losa um spennu, draga úr streitu og endurnýja orkuna. Með mildri leiðsögn gefst þátttakendum tækifæri til að slaka á, kyrrast og tengjast betur sjálfum sér í notalegu og afslappandi umhverfi ✨️
Engin reynsla er nauðsynleg og allir eru velkomnir að taka þátt, hvort sem þeir stunda jóga reglulega eða eru að prófa í fyrsta sinn. Gott er að mæta í þægilegum fatnaði og taka með sér dýnu, kodda og teppi til að gera upplifunina sem notalegasta 🤗
Einnig verður boðið upp á jóga nidra í Hellisgerði: laugardaginn 12.september kl. 12:00 og laugardaginn 26. september kl. 12:00.
Komdu og njóttu rólegrar og nærandi stundar fyrir líkama og sál!
HamingjuJógaNidra er hluti af Hamingjudögum í Hafnarfirði, sjá nánar 👉 hfj.is/hamingjudagar
Hlökkum til að sjá ykkur!