HamingjuTónleikar með Valdimar
Hellisgerði Hafnarfirði, Skúlaskeið, 220 Hafnarfjörður Directions
Fri Sep 25 2026 20:00
Föstudaginn 25. september kl. 20:00
Njóttu notalegrar tónlistarstundar í einstöku umhverfi Hellisgerðis þegar Valdimar Guðmundsson stígur á svið ásamt undirleikara sínum á Hamingjudögum í Hafnarfirði ❤️
Valdimar er þekktur fyrir einstaka rödd, hlýja nærveru og falleg lög sem hafa snert hjörtu landsmanna. Á þessum tónleikum fá gestir tækifæri til að staldra við, njóta tónlistar í návígi og upplifa töfra Hellisgerðis á síðsumarkvöldi ✨️
Tónlist hefur einstakan mátt til að lyfta andanum, skapa tengingu og færa okkur augnablik gleði og nærveru. HamingjuTónleikar með Valdimar eru því tilvalin leið til að enda daginn á notalegri og uppbyggilegri nótu 🎵🎶
Helliskaffi, nýja kaffihúsið í Hellisgerði, verður að sjálfsögðu opið svo gestir geti gætt sér á góðum veitingum og notið stemningarinnar fyrir og eftir tónleikana ☕️🍰
Komdu og njóttu ljúfrar tónlistar, góðrar samveru og einstakrar kvöldstundar í Hellisgerði 🤗
HamingjuTónleikar er hluti af Hamingjudögum í Hafnarfirði, sjá nánar 👉 hfj.is/hamingjudagar
Hlökkum til að sjá ykkur! ❤️