Hámörkum árangur með gervigreind - greining og ákvarðanir

Hámörkum árangur með gervigreind - greining og ákvarðanir

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Thu Nov 19 2026 08:30

Markmið námskeiðsins er að efla hæfni þátttakenda í að beita gervigreind við greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum.

Á þessu námskeiði nýtum við krafta gervigreindarlíkana til að efla okkar eigin hugsun og ákvarðanatöku á markvissan hátt.

Nálgunin byggir á því að þátttakendur þrói eigin röklega greiningu til að taka betri ákvarðanir; gervigreindin er notuð til að kanna valkosti, prófa rökfærslur og skýra forsendur, þannig að þátttakendur ná betri tökum á greiningunni sjálfir. Þátttakendur öðlast færni í að nýta gervigreind til stuðnings við greiningu orsaka og afleiðinga gagnvart flóknum viðfangsefnum og auka þannig færni sína í starfi og framtíðarmöguleika.

Færni í að eiga samskipti við gervigreindarlíkön (LLM) verður sífellt mikilvægari, enda eru líkönin notuð í sívaxandi mæli til að auðvelda vinnu og auka afköst. Séu líkönin notuð með kerfisbundnum og markvissum hætti geta þau hjálpað okkur að efla eigin hæfni til að greina aðstæður og taka betri ákvarðanir.

Ákvarðanataka og greining á flóknum viðfangsefnum krefst ítarlegrar greiningar orsaka og afleiðinga. Fram að þessu hefur áskorunin oft verið sá tími og sú fyrirhöfn sem vönduð greining krefst. Við hneigjumst því gjarnan til þess að stytta okkur leið, sem getur leitt til illa ígrundaðra ákvarðana. Með markvissri notkun gervigreindar innan ramma formlegrar aðferðafræði er hægt að flýta verulega fyrir vandaðri greiningu á flóknum viðfangsefnum, ásamt því að afhjúpa ómeðvitaðar forsendur sem við nánari skoðun kunna að reynast rangar eða ófullnægjandi. Um leið verður auðveldara að prófa rök fyrir og á móti, meta líklegar afleiðingar og skýra hvað þarf að liggja fyrir til að niðurstöður standist.

Í námskeiðinu er útskýrt, skref fyrir skref, hvernig nota má gervigreindarlíkön til að hraða og bæta greiningu orsaka og afleiðinga. Notast er við markvissa aðferðafræði við greiningu vandamála og mótun úrlausna, Röklegt umbótaferli (Logical Thinking Process), sem grundvallast á kenningum og aðferðum stjórnunarfrömuðarins Dr. Eliyahu M. Goldratt.

Þátttakendur læra um leið grundvallaratriði aðferðafræðinnar og hvernig nýta má gervigreind til að styðja við hvert skref: að gera forsendur skýrar, byggja röklega orsakakeðju, finna veikleika og ósamræmi og móta næstu skref á traustum grunni.Markmið námskeiðsins er að efla hæfni þátttakenda í að beita gervigreind með ábyrgum og gagnrýnum hætti við greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum og auka þannig færni þeirra í starfi og framtíðarmöguleika.

Námskeiðið er afar gagnlegt fyrir stjórnendur, sérfræðinga og annað fagfólk sem þarf að taka ákvarðanir um flókin viðfangsefni og vill nýta gervigreind til að efla eigin hæfni við greiningu og ákvarðanatöku.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Greiningu og ákvarðanir, sýnilegar og ósýnilegar (explicit, tacit) upplýsingar.
  • Eigindlega og megindlega (qualitative, quantitative) greiningu og hlutverk röklegrar nálgunar.
  • Tungumálalíkönin, eiginleika þeirra, styrkleika og veikleika og notkunarmöguleika við greiningu orsaka og afleiðinga.
  • Yfirlit yfir röklegt hugsunarferli (Logical Thinking Process) og dæmi um notkun.
  • Beitingu tungumálalíkana við greiningu orsaka og afleiðinga. Dæmi um notkun. Þjálfun í að beita fyrirfram skilgreindum, skipulegum fyrirmælum til að hámarka árangur.

Ávinningur þinn:

  • Þú lærir að beita gervigreind til að hraða og bæta greiningu og ákvarðanatöku gagnvart flóknum viðfangsefnum.
  • Þú færð innsýn í styrkleika og veikleika gervigreindarlíkana þegar kemur að greiningu orsaka og afleiðinga, hvernig nýta má styrkleikana og fást við veikleikana.
  • Þú kynnist og lærir grundvallaratriði Logical Thinking Process, sem er öflug aðferðafræði fyrir ákvarðanatöku og greiningu.
  • Þú nærð tökum á aðferðum sem auðvelda þér að nýta gervigreind til að auka eigin afköst, árangur og möguleika í starfi.