Hamrahljóð! Stórtónleikar MH60 ára
Undirheimar |Menntaskólinn við Hamrahlíð, Hamrahlíð 10, 105 Reykjavík Directions
Sat Sep 26 2026 19:00
Menntaskólinn við Hamrahlíð hefur gegnum tíðina fóstrað marga helstu tónlistarmenn og hljómsveitir þjóðarinnar.
Í tilefni af 60 ára afmæli skólans laugardaginn 26.september verður blásið til stórtónleika á Miklagarði þar sem fram koma tónlistarmenn úr hópi fyrrverandi nemenda auk hljómsveita sem enn eru í skólanum.
Fram koma:
Páll Óskar og Benni HemmHemm, Snorri Helgason, Ragnheiður Gröndal, Meðaltal, Svigrúm, Gammósíur, TommiG, Unnsteinn Manuel, Lára, Litlasveit, Salsakommúnan og Baggalútur.
Ofursveit MH, undir stjórn Jökuls Jónssonar, lokar svo kvöldinu en hana skipa Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar úr Hjaltalín, Jakob Frímann Magnússon og Þórður Árnason úr Stuðmönnum, Andri Ólafsson úr Moses Hightower, Bragi Valdimar, Karl Sigurðsson og Kristbjörn Helgason úr Baggalút, auk sessjónmannanna Jóels Pálssonar og Karls Olgeirssonar og Þorsteins Jónssonar.
Kynnar: Hólmfríður Hafliðadóttir og Níels Thibaud Girerd
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Fyrrverandi og núverandi MH-ingar sérstaklega boðnir velkomir. Skólayfirvöld áskilja sér rétt til að takmarka aðgang ef þurfa þykir.