Hátíðartónleikar Gjallanda

Hátíðartónleikar Gjallanda

Neskirkja, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions

Wed Dec 30 2026 20:00

Verið velkomin á Hátíðartónleika Gjallanda!

Þegar jólin eru gengin í garð og fólkið bíður óþreyjufullt eftir nýju ári, langar okkur í Gjallanda að endurtaka leikinn og framlengja jólaandanum með hátíðlegum tónleikum í Neskirkju, líkt og í fyrra. Samhljómur hörpu og radda mun færa birtu og friðsæld inn í myrkasta skammdegið.

Prógram tónleikanna er prýtt íslenskum og enskum verkum fyrir kvennakór og hörpu og verður meginstöpull tónleikanna verkið A Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten.

Hörpuleikari verður Sólveig Thoroddsen.

Gjallanda skipa:

Anna Elísa Axelsdóttir,

Ásta Sigríður Arnardóttir,

Bryndís Ásta Magnúsdóttir,

Helga Guðný Hallsdóttir,

Kristrún Guðmundsdóttir,

Margrét Björk Daðadóttir,

Ragnheiður Petra Óladóttir,

Steinunn María Þormar,

Vera Hjördís Matsdóttir.

Miðasala á https://tix.is/event/22650/hatidartonleikar-gjallanda