Haustfundur JÖRFÍ, Esjufjöll og GLACIER FEVER
RVK Brewing Co. - Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Directions
Thu Oct 29 2026 20:00
Jón Viðar Sigurðsson mun flytja erindið "Esjufjöll - jöklabreytingar, jökulstífluð lón, jökulhlaup og jarðhiti". Hann hefur náð að mynda tæmingu jökullónsins í Fossadal í tvígang, sumarið 2025 og 2026 með hikmyndavél. Þegar lónið nær ákveðinni hæð hleypur vatnið undir Esjufjallajökul og skilar sér í Jökulsárlón á Breiðamerkursandi. Þar sem Jökulsárlón dempar jökulhlaupin eru áhrif þeirra í byggð frekar lítil, en þó eru dæmi þess að gönguleiðir við lónið fari á kaf og rennsli Jökulsár aukist. Fyrir áhugasama birtist í síðasta hefti Jökuls grein um jökulhlaupum úr Fossadal eftir Jón Viðar og félaga https://jokull.jorfi.is/articles/jokull2025.75/jokull2025.75.087.pdf. Einnig verða sýndar fallegar myndir af jarðhitasvæðinu við suðurenda Esjubjarga.
Eftir hlé sýnum við heimildamyndina "Glacier fever" eftir þau Donal Boyd og Emma Romeijn, sem fjallar um Jöklarannsóknafélagið með áherslu á samstarf vísindafólks og sjálfboðaliða. Myndin hlaut styrk frá Leica og var unnin í tilefni af alþjóðaári jökla 2025.