Haustmarkaður Vonarbrúar í Sigluvík

Haustmarkaður Vonarbrúar í Sigluvík

Haustmarkaður Vonarbrúar, Haustmarkaður Vonarbrúar, Sigluvík 606 Akureyri Directions

Sun Sep 27 2026 13:00

Það á Haustmarkaði Vonarbrúar í Sigluvík sem töfrarnir eiga sér stað, kl. 13-17 laugardaga og sunnudaga.

Einstök stemning samhygðar og samstöðu og öll innkoma rennur beint til barnafjölskyldna í neyð á Gasa. Heitt á könnuni og ljúfar móttökur, kertaljós og ilmandi kaffi á könnunni í boði hússins.

Skemman er full af alls konar notuðu postulíni, skrautmunum, leirtaui, bókum, notuðu skarti og nýrri prjónavöru. Að ógleymdu sælkerahorninu þar sem fá má gómsætar kleinur, sultur, hlaup, lakkrís, frosinn rabararbara og stundum fæst eitthvað meira óvænt.

Á markaðinum seljum við líka Vonarbrúar bolina fallegu, bæði úr "dry fit" efni í ræktina eða hlaupin (6000 kr) og mjúka og notalega bómullarboli (5000 kr). Hjá okkur fást líka Vonarbrúar armböndin björtu og fallegu í ýmsum stærðum, samstöðu armbönd, pennar og fleira.

Hafið þið upplifað ykkur máttvana og dofin, í áfalli, gagnvart því sem börnin á Gasa þurfa að þola, ásamt foreldrum sínum, ömmum og öfum?

Við hjá Vonarbrú höfum leiðina til að koma styrkjum til um 70 barnafjölskyldna þar og styðjum þau einnig sálfélagslega eftir bestu getu. Við þurfum á ykkur að halda og bjóðum ykkur svo innilega velkomin hingað til okkar til að sjá hvort þið getið ekki nýtt ykkur að gera góð kaup hér hjá okkur. Við vinnum allt í sjálfboðavinnu og markaðurinn er í fríu húsnæði þannig að öll innkoma er send beint til fjölskyldnanna.

Ath. að nú hefur opnunartími breyst frá því í sumar, - auglýstur opnunartími er á lau. og sun. en við opnum einnig fyrir hópa eftir samkomulagi. Það getur munað mikið um hverja slíka heimsókn svo hikið ekki við að hóa saman áhugasömu mannúðarfólki í ferð hingað á Vonarbrúar markað.

@Kristín S. Bjarnadóttir

Ps. Í sömu skemmu er sala frá @Blúndur og blóm og í efri skemmunni, við veginn, er @Flóamarkaðurinn í Sigluvík.

Performers