Hausttónleikar Lúðrasveitar Hafnarfjarðar
Víðistaðakirkja, Garðavegur 23, 220 Hafnarfjörður Directions
Sat Nov 21 2026 14:00
Lúðrasveit Hafnarfjarðar blæs til hausttónleika í Víðistaðakirkju laugardaginn 21. nóvember kl. 14:00.
Á efnisskránni verður aðallega nýleg tónlist fyrir lúðrasveitir, meðal annars verk eftir Richard Saucedo, Samuel Hazo, Franco Cesarini og Etienne Crausaz. Einnig verður leikin léttari tónlist, til dæmis syrpur laga, annars vegar úr West Side Story og hins vegar úr sígildum teiknimyndum sem allir eldri tónleikagestir ættu að kannast við.
Stjórnandi Lúðrasveitar Hafnarfjarðar er Rúnar Óskarsson.
Almennt miðaverð er 3000 krónur, en aðgangur er ókeypis fyrir 16 ára og yngri. Miða má nálgast í forsölu hjá lúðrasveitarfélögum fram að tónleikadegi, en einnig verður miðasala við innganginn. Rétt er að benda á að ekki verður posi við innganginn.