Heilaheilsa og þjálfun hugans
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Wed Nov 18 2026 16:15
Á þessu skemmtilega námskeiði er fjallað um hugræna þætti og hlutverk þeirra í okkar daglega lífi, auk leiða til að þjálfa hugann og efla heilaheilsu.
Á námskeiðinu er fjallað um heilann og hugarstarf. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi. Einnig að þeir öðlist betri innsýn í eigin hugrænu styrkleika og veikleika og læri leiðir til að þjálfa hugann og efla heilaheilsu.
Hugræn geta á við um starfsemi heilans sem gerir okkur kleift að vera virk í daglegu lífi; heima, í vinnu og í samskiptum. Áhersla á heilaheilsu hefur verið að aukast síðustu áratugina og rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi ýmissa leiða til að þjálfa heilann og viðhalda góðri heilaheilsu út lífið. Hugræn þjálfun hefur verið rannsökuð víða og er nú í boði sem meðferð fyrir ýmsa hópa.
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja fræðast um heilaheilsu og leiðir til að þjálfa hugræna þætti á markvissan hátt.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Heilaheilsu og hugræna þætti, s.s. einbeitingu, athygli, minni og stýrifærni, og áhrif þeirra á daglegt líf.
- Leiðir til að bæta heilbrigði heilans og lifa heilaheilsuvænu lífi.
- Hugræna þjálfun.
- Hvernig á að útbúa þjálfunaráætlun til að bæta hugræna getu og meta árangurinn.
Ávinningur þinn:
- Að auka skilning á hugarstarfi.
- Að auka innsýn í eigin hugræna styrkleika og veikleika.
- Að læra fjölbreyttar leiðir til að bæta hugarstarf og heilaheilsu.