Heilaleikfimi í hádeginu - Hádegistónleikar
Lutheran Free Church, Fríkirkjuvegur 5, 101 Reykjavík Directions
Wed Dec 02 2026 12:00
Hádegistónleikar
Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni
fimmtudaginn 2. Desember kl. 12
- Heilaleikfimi í hádeginu -
Flytjendur:
Anna Þórhildur Gunnarsdóttir, píanisti
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, píanisti
Um tónleika:
Heilaleikfimi í hádeginu
Þessir hádegistónleikar draga fram heillandi heim Wolfgang Amadeus Mozart og sónötu hans K. 448, sem tengd hefur verið svokölluðum Mozart-áhrifum. Rannsóknir benda til að hlustun á þessa sónötu hafi jákvæð áhrif á vinnsluminni heilans og skapsmuni. Verður sú kenning lögð fyrir áheyrendur til að skera úr um.
Hefjast tónleikarnir á djúpum og hlýjum tónum Rachmaninoffs þar sem ólgandi tilfinningarnar krauma undir yfirborðinu. Úr því leiðir léttleiki Barnaleikja Bizets hlustandann yfir í bjartari tóna. Þar tekur við ærslafullur Mozart, fullur af leik- og lífsgleði.
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.