Heimsókn í Lundabyggð
Reykjavík Park and Zoo, Múlavegur 2, 104 Reykjavík Directions
Wed Sep 16 2026 10:00
Gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins býðst að heimsækja lundabyggðina í Drangey með aðstoð sýndarveruleikatækni á Degi íslenskrar náttúru.
Myndbandið sem sýnt er í sýndarveruleikagleraugunum var tekið upp af Árna Rúnari Hrólfssyni á árunum 2024 og 2025 í Drangey, þeim einstaka og stórbrotna stað. Náttúrufegurðin, útsýnið og umhverfið gera upplifunina einstaka og eftirminnilega.
Myndatökurnar reyndust Árna Rúnari þó áskorun. Þótt lundinn við bryggjuna sé nokkuð vanur nærveru fólks og því auðveldari viðfangs en margir aðrir fuglar sem þarf að komast ótrúlega nálægt til að ná góðu myndefni með þessari tækni.
Árni Rúnar segist hvergi nærri hættur að mynda þennan stórbrotna fugl.
Kíkið við í veitingaskálanum á Degi íslenskrar náttúru en einnig verður hægt að sjá myndbandið fram eftir hausti á opnunartíma garðsins.