Hlemmur - Bíótekið!
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Directions
Sun 04.10.2026 15:00
Á Hlemmi mættust ólíkar manneskjur sem flestar áttu það sameiginlegt að hafa lent á jaðri samfélagsins. Hlemmur er áhrifamikil heimildamynd í leikstjórn Ólafs Sveinssonar um fólkið sem sem hafðist við á og í kringum samnefnda umferðarmiðstöð í Reykjavík.
Myndavélin fylgist með lífi einstaklinga og gefur þeim rými til að segja frá sjálfum sér, lífsbaráttunni, vináttunni og einmanaleikanum. Húmor, hlýja og sorg fléttast saman og smám saman verður Hlemmur að meira en biðstöð, hann verður athvarf og samfélag fólks sem hefur oft fáa aðra staði að leita til.
Tónlist Sigur Rósar nýtur sín vel í myndinni, sem hlaut meðal annars Edduverðlaun sem besta heimildarmyndin og fyrir bestu tónlist.
Myndin er sýnd í Bíótekinu, sunnudaginn 4. október kl 15:00!
Performers
-
Félagsfræðingafélag ÍslandsFélagsfræðingafélag Íslands var stofnað 30. nóvember 1995. Tilgangur félagsins er að efla fræðilega umræðu meðal félagsmanna og áhugafólks um félagsfræði
-
BíótekiðKvikmyndasafn Íslands hefur stofnað Bíótekið og mun vera með reglulegar kvikmyndasýningar í samstarfi við Bíó Paradís. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna hér undir ,,events" og á Kvikmyndasafn.is og bioparadis.is.
-
Kvikmyndasafn Íslands
Kvikmyndasafn Íslands safnar, varðveitir og miðlar íslenskum kvikmyndum.