Hlykkjóttir baugar og lifandi taugar. Sparwenfeldts-Edda og skriftarlistin
Edda, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Directions
Tue Oct 13 2026 12:00
Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur flytur fyrirlestur í tengslum við sýninguna Heimur í orðum í fyrirlestrasal Eddu.
Í bók fyrirlesara um Jón Guðmundsson lærða sem kom út fyrir 10 árum eru tíunduð fáein handrit sem er býsna öruggt að hann hafi skrifað og að auki nokkur þar sem því er slegið fram með misvel ígrunduðum rökum að hugsanlega hafi Jón verið að verki. Eitt þeirra er Sparwenfeldts Edda sem varðveitt er í Stokkhólmi, Isl. perg. 4:o 3, bráðfallegt handrit, stundum kallað „síðasta Eddan á skinni“.
Rökin fyrir því að Jón hafi skrifað það eru varla nema ábyrgðarlausir bláþræðir sem geta þó vakið ýmsar spurningar. Rætt verður um möguleikann á að Jón hafi skrifað handritið, fjallað um menningarlegt samhengi handritagerðar undir handarjöðrum biskupanna Brynjólfs Sveinssonar og Þorláks Skúlasonar og loks fjallað um skrift og skrifara handrita með almennari og jafnvel léttúðugri hætti, frá sjónarhóli manns sem fæst við hugmynda- eða menningarsögu fremur en handritafræði og umhverfishugvísindi frekar en miðaldafræði.