Höfundaspjall: Ólafur Ragnar og Katrín Jakobsdóttir

Höfundaspjall: Ólafur Ragnar og Katrín Jakobsdóttir

Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Directions

Fri Nov 20 2026 17:00

Ólafur Ragnar Grímsson sest á svið með Katrínu Jakobsdóttur í Bókabúð Forlagsins föstudaginn 20. nóvember kl. 17:00 og ræðir nýja bók sína, Vegferð um veröldina. Bókin verður á sérstöku tilboði á staðnum.

Frá námsárum til forsetakjörs fór Ólafur Ragnar Grímsson víða um veröldina og vann með fjölda áhrifamanna í ýmsum álfum. Þjóðin fær nú í fyrsta sinn frásagnir af þessari vegferð. Bókin er á þann hátt ævisaga og tengist fyrri verkum hans, Sögum handa Kára og Rótum.

Hér kynnumst við ungum manni sem hélt út í heim, barst á öldufaldi breytinga og myndaði svo bandalög við leiðtoga í Evrópu, Ameríku, Asíu og Afríku. Vegferðin endurspeglar baráttu fyrir afvopnun, friði og farsæld fátækra ríkja og sýnir hvernig hægt er að ná árangri í viðsjárverðum heimi. Frásögnin sýnir samfelldan þráð frá námsárum í Bretlandi til baráttunnar um Bessastaði.

Allir velkomnir, við hlökkum til að sjá ykkur!