Hr. Eydis
Háskólabíó, Hagatorg, 101 Reykjavík Directions
Sat 07.11.2026 20:00
Bestu bíómyndalög níunda áratugarins! Hr. Eydís og Erna Hrönn bjóða nú upp á tónleikapartý þar sem stærstu kvikmyndasmellir '80s fá að njóta sín. Á efnisskránni eru lögin sem hljómuðu í bíómyndunum og urðu meðal vinsælustu laga áratugarins. Hvort sem þú manst eftir þeim úr bíóinu, af VHS-spólunum eða útvarpinu, þá eru þetta lög sem vekja upp minningar og fá flesta til að öskursyngja með. Ef þú hefur áður séð Hr. Eydísi og Ernu Hrönn saman veistu við hverju má búast. Hr. Eydís skipa Örlygur Smári, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Páll Sveinsson, Ríkharður Arnar og Jón Örvar Bjarnason.
Performers
-
Hr. Eydís
A band performing music from the 1980s.