Hraðíslenska (stefnumót við íslensku) á Ísafirði
Dokkan brugghús, Sindragata 14, 400 Ísafjörður Directions
Sat Dec 19 2026 16:00
Viðburður sem lýtur svipuðum lögmálum og hraðstefnumót nema að markmiðið er að tala íslensku. Móðurmálshafar æfa sig að tala skýrt og hægt og gera allt sem þeir geta til að gera sig skiljanlega á íslensku. Þeir sem læra æfa sig í íslensku. Móðurmálshafinn og sá sem talar á pari við slikan, er almannakennari og æfir sig í því hlutverki.
Búum saman til rými til að gefa fólki tækifæri til að nota það sem það kann í íslensku án þess að nokkuð liggi við. Gerum þetta allt með bros á vör og gleðina að vopni.
Gerum þetta saman (það er gaman).