Hugleiðsla - Að finna frið í dagsins önn

Hugleiðsla - Að finna frið í dagsins önn

Háskólinn á Akureyri | M-101, Norðurslóð, 600 Akureyri Directions

Tue Sep 29 2026 17:00

Að finna frið í dagsins önn“ er sex vikna námskeið í núvitund og hugleiðslu fyrir alla sem vilja draga úr streitu, róa hugann og efla vellíðan í daglegu lífi. Námskeiðið byggir á aðferðum í núvitundar þar sem þátttakendur læra einfaldar en áhrifaríkar æfingar sem hjálpa þeim að vera meira til staðar í augnablikinu og takast á við álag af meiri ró og jafnvægi.

Á námskeiðinu fléttast saman fræðsla, hugleiðsluæfingar og umræður með áherslu á að þátttakendur geti nýtt aðferðirnar í eigin lífi, bæði heima og í starfi. Námskeiðið byggir á metsölubókinni Finding Peace in a Frantic World eftir Mark Williams og Danny Penman og hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja dýpka skilning sinn á núvitund og sjálfsrækt.

Skráning fer fram á vef Símenntunar HA: https://smha.is/courses/hugleidsla-ad-finna-frid-i-dagsins-onn