Hugræn endurhæfing - námskeið fyrir fagaðila
Tue Feb 16 2027 09:00
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að fræða þátttakendur um heilann og hugrænan vanda óháð orsökum.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að fræða þátttakendur um heilann og hugrænan vanda óháð orsökum. Fjallað er um heilann, hugarstarf, hugrænan vanda og ólíkar aðferðir hugrænnar endurhæfingar kynntar.
Áhersla á heilaheilsu og hugrænan vanda hefur aukist síðustu ár í samhliða því að hugrænar kröfur hafa aukist. Vandi með hugarstarf, s.s. athygli, einbeitingu, hugrænan hraða og minni er algengur og getur komið fram eftir langvarandi streitu, tilfinningavanda, veikindi, áföll og heilahristing svo dæmi séu tekin. Hugrænn vandi hefur áhrif færni í lífi og starfi, sjálfstraust, líðan og lífsgæði.
Hugræn endurhæfing byggir á atferlismótun, kennslufræði og hugrænni atferlismeðferð og er markmiðið að er að bæta hugræna ferla varanlega og stuðla að yfirfærslu árangurs í daglegt líf.
Ekki verður fjallað sérstaklega um hugræna endurhæfingu fyrir þá sem hafa hlotið alvarlegan heilaskaða eða eru með þroskahamlanir.
Námskeiðið er fyrir öll þau sem vilja kynna sér aðferðir hugrænnar endurhæfingar. Sérstaklega gagnlegt fyrir fagfólk sem vinnur með fólki sem glímir við hugrænan vanda óháð orsökum.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Heilann og hugrænan vanda.
- Ólíkar aðferðir hugrænnar endurhæfingar.
- Leiðir til að auka áhugahvöt.
Ávinningur þinn:
- Aukinn skilningur á forsendum heilans til að eflast.
- Þekking á ólíkum aðferðum hugrænnar endurhæfingar.
- Hagnýt ráð til að koma upplýsingum til skila til fólks með hugrænan vanda.