Húmor og harmur - Áföll, sorg og bjargráð
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Tue Feb 23 2027 16:00
Hvernig getur manneskjan notað húmor sem varnarhátt gegn áföllum og harmi? Á þessu vinsæla námskeiði kafar Edda Björgvinsdóttir ofan í efnið á einstakan hátt.
Áföll og sorg er eitthvað sem allar manneskjur upplifa á lífsleiðinni en bjargráðin eru sem betur fer ótal mörg og þeir einstaklingar sem nýta sér þær leiðir sem til eru ná gjarnan fyrri lífsgæðum og lífsorku eftir erfiða lífsreynslu.
Bjargráð eftir áföll eru mjög margvísleg og húmor getur verið afar öflugt verkfæri í bataferli (eða endurreisn) eftir að áfall/áföll hafa átt sér stað. Bjargráð eru nokkurs konar varnarkerfi líkamans og kannast margir við einkenni eins og doða, afneitun, sjálfsásökun og alls konar geðsveiflur.
Sigmund Freud sagði: „Varnarhættir eru aðferðir sem heilbrigður hugi beitir til að kaffærast ekki í sársaukafullum eða ógnandi upplifunum“.
Á þessu námskeiði verður farið í þá varnarhætti sem talið er að gagnist manneskjunni og sérstaklega verður hugað að fyrirbærinu húmor, sem hefur reynst afbragðsbjargráð margra. Harmur að viðbættum tíma getur orðið húmor þó svo að áföll og sorg séu í sjálfu sér aldrei fyndin eða veki hlátur.
Námskeiðið er fyrir öll þau sem vilja auka þekkingu sína á því hvernig manneskjan bregst við áföllum og sorg og einnig þau sem vilja veita öðrum styrk.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Viðbrögð líkamans við áföllum. Varnarhættir og bjargráð.
- Muninn á áfallastreitu og áfallastreituröskun.
- Sorg og sorgarferli.
- Gleði-verkfærin í gleðibankanum.
Ávinningur þinn:
- Aukin færni í að greina eigið ástand í áfalli og/eða sorg.
- Verkfæri í verkfæratöskuna til sjálfshjálpar og til að veita öðrum manneskjum stuðning í áfalli eða sorgarferli.
- Þekking á fjölmörgum tækjum og tólum til að öðlast fyrri lífskraft eftir áföll.
- Innistæða í gleðibankanum.