Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu?
University of Iceland School of Education, Hagatorg 1, 107 Reykjavík Directions
Wed Sep 30 2026 14:00
Aðalmálstofa Menntakviku: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu?
📅 30. september 2026 kl. 14:00-15:30
📍 Saga S-114 og í streymi.
Hlekkur á streymi: https://vimeo.com/event/6205619
Fundarstjóri: Jón Torfi Jónasson prófessor emeritus og fyrrverandi forseti Menntavísindasviðs
Í aðalmálstofu Menntakviku verður fjallað um opinbera umræðu um menntarannsóknir og stöðu menntakerfisins. Hvaða áskorunum standa forsvarsmenn rannsókna og mælinga frammi fyrir og hvernig er best að koma niðurstöðum og tillögum um aðgerðir á framfæri og í farveg? Fjallað verður um þetta í samhengi við nýjustu og fyrri niðurstöður PISA en einnig Matsferil og þau tækifæri sem slík reglubundin mæling getur haft í för með sér. Sjónarhorn MMS, fjölmiðlamanneskju og fræðimanna MVS koma saman og fyrirlesarar velta fyrir sér hvernig hægt er að þróa umræðuna og leggja grunn að stefnumótun til framtíðar í stað skammtímalausna og upphrópana.
▪ Freyja Hreinsdóttir forseti Menntavísindasviðs flytur ávarp
▪ Katrín Ólafsdóttir lektor við MVS: Ábyrgð fræðimanna í opinberri umræðu um menntamál
▪ Guðrún Hálfdánardóttir dagskrárgerðarmaður á RÚV: Áskoranir sem fjölmiðlafólk stendur frammi fyrir þegar kemur að því að upplýsa um menntamál
▪ Þórdís Sigurðardóttir forstjóri MMS: Mikilvægi Matsferils, tækifæri og áskoranir?
▪ Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor og ritstjóri nýrrar skýrslu um niðurstöður PISA 2025: Hvernig komum við áfram góðum hugmyndum og tillögum til úrbóta?
Pallborðsumræður
▪ Katrín Ólafsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
▪ Guðrún Hálfdánardóttir, dagskrárgerðarmaður á RÚV
▪ Þórdís Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
▪ Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
▪ Ómar Örn Magnússon, aðstoðarskólastjóri Hagaskóla
▪ Helgi Grímsson, sérfræðingur hjá Mennta- og barnamálaráðuneytinu
Ekki verður tekið á móti spurningum úr sal en hægt er að senda spurningar til pallborðs fyrirfram á menntavisindastofnun@hi.is og mun fundarstjóri sjá um að koma þeim áleiðis.
Málstofan er ókeypis og öll velkomin!
______________________
Málstofan er hluti af dagskrá Menntakviku, ráðstefnu í Menntavísindum, sem haldin verður 30. september - 1. október í Sögu. Hægt er að skoða dagskrá Menntakviku hér: https://virtual.oxfordabstracts.com/event/77397/program
Nánari upplýsingar um Menntakviku er að finna á www.menntakvika.hi.is