Í túninu heima á Gljúfrasteini
Laxness Museum - Gljúfrasteinn, Gljúfrasteinn, 270 Mosfellsbær Directions
Sat 29.08.2026 10:00
Nú líður senn að árlegu bæjarhátíðinni Í túninu heima. Að venju er boðið upp á fjölbreytta menningarviðburði í Mosfellsbæ, til að mynda tónleika, myndlistarsýningar, útimarkaði og íþróttaviðburði svo fátt eitt sé nefnt.
Gljúfrasteinn tekur að sjálfsögðu þátt í hátíðinni og opnar dyr safnsins upp á gátt laugardaginn 29. ágúst. Frítt verður inn á safnið þennan dag, frá klukkan 10 - 17.
Litli Laxness bókamarkaðurinn verður opinn í móttökunni þar sem finna má bækur á góðu verði og tilboð af ýmsu tagi.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest kæru Mosfellingar og aðrir gestir.
Velkomin og gleðilega hátíð!
Performers
-
Í túninu heima
Bæjarhátíðin Í túninu heima fer fram í Mosfellsbæ 29. ágúst - 1. september 2024.