Íhugunarferð um Fjallabak nyrðra

Íhugunarferð um Fjallabak nyrðra

Fjallabaksleið Nyrðri, 880 Skaftárhreppur, Ísland, Directions

Fri Aug 20 2027 09:00

RÚTUFERÐ MEÐ JÓGA, SJÁLFSEFLINGU OG GÖNGUFERÐUM

28. - 30. ágúst 2026

Kvennaferð.

Hálendið er frábær vettvangur til að staldra við og íhuga eigin stefnu. Koma sér út úr daglegu amstri og inn í víðáttu óbyggðanna.

Þar má finna næði til að hlusta á eigin hugsanir og íhuga hvaða nærandi lífsstíll og þættir eru að kalla á þig núna.

Leiðin liggur austur og inn í Skaftártungur þar sem er gist fyrri nóttina. Þaðan er keyrð Fjallabaksleið nyrðri að Landmannalaugum og Landmannahelli og gist þar seinni nóttina. Síðasta daginn er farið að Auganu í Rauðfossakvísl og svo liggur leiðin til byggða.

Rútan er með hópnum allan tímann. Gengið er um einstakar náttúruperlur í ferðinni og víða staldrað við til að íhuga, slaka eða ganga um.

Sjá nánar á heimasíðunni: https://thinleid.is/fjallabak

Einstakt tækifæri.

Performers