Íslensk menning
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Tue Nov 17 2026 17:00
Meginmarkmið námskeiðsins er að veita yfirsýn yfir þróun íslenskrar menningar frá upphafi byggðar til samtímans.
Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum.
Örnám í samstarfi við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands.
Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti:
- Án námsmats – fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar.
- Með námsmati – fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar. Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.
Meginmarkmið námskeiðsins er að veita yfirsýn yfir þróun íslenskrar menningar frá upphafi byggðar til samtímans og ígrunda hvernig hún birtist í daglegu lífi, listum og samfélagi. Fjallað er um hversdagsmenningu, breytingar á lifnaðarháttum og þjóðarhefðum, auk þróunar bókmennta og listgreina, svo sem myndlistar, tónlistar, byggingarlistar, kvikmyndagerðar og hönnunar. Rýnt er í þjóðsögur og norræna goðafræði sem menningarlegar birtingarmyndir og áhrif þeirra á sjálfsmynd og gildi samfélagsins. Einnig er greint hvernig íslensk menning hefur mótast í samspili við alþjóðlega strauma og hvernig menningararfurinn birtist í samtímanum. Í tengslum við námskeiðið heimsækja nemendur söfn og átta sig á hvernig menningu og sögu er miðlað til gesta. Áhersla er lögð á að tengja menningararf við nútímasamfélag og beita fræðilegum hugtökum við greiningu og miðlun.
Hæfniviðmið:
Við lok námskeiðsins getur nemandi:
- lýst helstu þáttum og þróun íslenskrar menningar frá upphafi til nútímans.
- útskýrt áhrif bókmennta, lista og efnismenningar á samfélag og sjálfsmynd.
- greint þjóðsögur og goðafræði sem spegil menningarlegra gilda og breytinga.
- tengt menningararf Íslands við samtíma og alþjóðlegt samhengi.
- borið kennsl á lykilstefnur og verk í íslenskri bókmennta- og listasögu.
- greint hlutverk safna í miðlun menningararfs.
- metið hvernig sýningar og framsetning hafa áhrif á upplifun og skilning gesta.
Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði.
Staðlota í námskeiðinu er 5. desember, kl. 9:00 – 16:00.