Ítalska I

Ítalska I

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Feb 02 2027 17:15

Langar þig að læra tungumál þeirra Dante, Leonardo, Galilei, Verdi, Pinocchio og Bocelli? Langar þig til að tala ítölsku og fá nýja sýn inn í ítalska menningu?

Á námskeiðinu er fjallað um grunnatriði í ítölsku og gefin innsýn í menningu Ítalíu. Einfaldir og markvissir kennsluhættir skila þátttakendum góðri kunnáttu á stuttum tíma sem nýtist vel við daglegar athafnir og í ferðalögum. Ekki er krafist neinnar forkunnáttu.

Athygli er vakin á framhaldsnámskeiðinu, Ítalska II.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Grunnatriði í málfræði eins og setningarfræði, nafnorð, greinir, lýsingarorð og sagnorð.
  • Grunnatriði í ítalskri hljóðfræði og framburði.

Ávinningur þinn:

  • Þú lærir að kynna þig og tala um sjálfan þig og áhugamál þín og spyrja á ítölsku: hvað heitir þú, hvaðan ertu, hvaða tungumál talar þú, hvar býrðu, hvað er starf þitt, hvað ertu gamall.
  • Þú lærir að spyrja um og lýsa stöðum og fólki, spyrja um merkingu orða.
  • Þú lærir að nota ítölsku á ferðalagi um Ítalíu til að geta átt samskipti við heimamenn á kaffihúsi eða veitingastað.

Performers