Íþróttavika Evrópu - #beactive

Íþróttavika Evrópu - #beactive

Fjarðabyggð, Austurland Directions

Tue Sep 29 2026 00:00

Íþróttavika Evrópu verður haldin í Fjarðabyggð dagana 23.–30. september. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Allir viðburðir vikunnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu og frítt verður í allar sundlaugar Fjarðabyggðar alla vikuna. Miðvikudagur 23. september Kl. 10:30–12:00 – 60+ gusa með Bobbu í Stefánslaug í Neskaupstað. Kl. 10:30–12:00 – 60+ gusa með Eygló í Sundlaug Eskifjarðar. Kl. 16:00–18:00 – Prófaðu padel hjá Padel Palma á Reyðarfirði. Kl. 17:00–18:00 – Spinning í Glaðheimum á Fáskrúðsfirði. Kl. 17:00–18:30 – Sjósund við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Kl. 17:00–18:00 – Göngufótbolti á fótboltavellinum í Neskaupstað. Fimmtudagur 24. september Kl. 16:00–18:00 – Fjölskyldupadel hjá Padel Palma á Reyðarfirði. Kl. 16:30–17:30 – Opinn HYROX-tími og kynning í Eyrinni á Reyðarfirði. Kl. 16:30–17:30 – Sundæfing fyrir fullorðna í Stefánslaug í Neskaupstað. Kl. 17:00–18:30 – Sjósund við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Kl. 17:00–18:00 – Yoga & Sport í Vallarhúsinu á Eskifirði. Kl. 17:30–18:30 – Foreldra- og kynningarfundur skíða- og brettadeildar Leiknis í stofu 10 í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Kl. 18:00–19:30 – Gusa með Bobbu í Stefánslaug í Neskaupstað. Kl. 20:00–22:00 – Brennómót félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar í Íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði. Skráning er nauðsynleg. Föstudagur 25. september Kl. 10:30–12:00 – 60+ gusa með Bobbu í Stefánslaug í Neskaupstað. Kl. 12:00–13:00 – Göngufótbolti í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Kl. 16:00–20:00 – Byrjendamót hjá Padel Palma á Reyðarfirði. Kl. 17:00–18:30 – Sjósund við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Kl. 17:00 – Fyrirlesturinn „Það er pláss – saman gegn félagslegri einangrun“ fyrir fólk 60 ára og eldra í Safnaðarheimilinu í Neskaupstað. Kl. 18:00–19:30 – Gusa með Eygló í Sundlaug Eskifjarðar. Laugardagur 26. september Kl. 9:30–10:15 – Íþróttaskóli fyrir börn fædd 2023–2024 í Íþróttahúsinu í Neskaupstað. Kl. 10:00–11:00 – Íþróttaskóli fyrir leikskólabörn í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Kl. 10:00–11:00 – Íþróttaskóli fyrir leikskólabörn í Íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði. Kl. 10:15–11:00 – Íþróttaskóli fyrir börn fædd 2021–2022 í Íþróttahúsinu í Neskaupstað. Kl. 11:00–12:00 – Zumba með Lilju í Íþróttahúsinu á Breiðdalsvík. Kl. 12:00–13:00 – Opinn styrktar- og þrektími í Nesheimum í Neskaupstað. Kl. 12:00–14:00 – Teymingar fyrir börn hjá Hestamannafélaginu Blæ í Neskaupstað. Kl. 13:00 – Hringleikarnir í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Kl. 13:00–14:00 – Opið hús hjá Padel Palma á Reyðarfirði. Kl. 14:00–16:00 – Framhaldsmót í padel hjá Padel Palma á Reyðarfirði. Kl. 16:00–18:00 – Rafíþróttir fyrir börn á grunnskólaaldri í Austrahúsinu á Eskifirði. Kl. 17:00–18:30 – Kajaknámskeið hjá Siglingaklúbbnum við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Frítt í golf hjá Golfklúbbnum GKF á Reyðarfirði. Sunnudagur 27. september Kl. 17:00–18:30 – Kajaknámskeið hjá Siglingaklúbbnum við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum. Mánudagur 28. september Kl. 6:00–7:00 – Spinning í Glaðheimum á Fáskrúðsfirði. Kl. 16:00–17:00 – Stelpuæfing hjá Padel Palma á Reyðarfirði. Kl. 16:30–17:30 – Sundæfing fyrir fullorðna í Stefánslaug í Neskaupstað. Kl. 17:00–18:00 – Kvennapadel hjá Padel Palma á Reyðarfirði. Kl. 17:00–18:00 – Hlaupaæfing með Gunnari í Eyrinni á Reyðarfirði. Kl. 18:00–19:30 – Gusa með Bobbu í Stefánslaug í Neskaupstað. Kl. 18:00–19:30 – Gusa með Eygló í Sundlaug Eskifjarðar. Þriðjudagur 29. september Kl. 8:00–16:00 – Mælingar fyrir þátttakendur Janusar í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Kl. 17:00 – Fjölskylduganga frá Grunnskóla Stöðvarfjarðar. Kl. 17:00–18:00 – Yoga & Sport í Vallarhúsinu á Eskifirði. Kl. 18:00–20:00 – Finndu spilafélaga úr þínum bæ hjá Padel Palma á Reyðarfirði. Kl. 18:00 – Fyrirlesturinn „Eldumst hraust“ fyrir fólk 60 ára og eldra í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði. Miðvikudagur 30. september Kl. 16:00–18:00 – Opið hús – padel fyrir alla hjá Padel Palma á Reyðarfirði. Kl. 16:00–18:00 – Rafíþróttir fyrir börn á grunnskólaaldri í Austrahúsinu á Eskifirði. Kl. 16:00–19:00 – Opið hjá Fönn hjólafélagi í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað. Kl. 17:00–19:00 – Golfklúbbur Norðfjarðar verður með golf á fótboltavellinum í Neskaupstað. Opnar æfingar íþróttafélaga Íþróttafélög víðs vegar um Fjarðabyggð verða með opnar æfingar í íþróttavikunni: Leiknir á Fáskrúðsfirði – blak og filmleikar. KFA – opnar fótboltaæfingar í öllum flokkum. Þróttur í Neskaupstað – blak og sund. Austri á Eskifirði – sund. Valur á Reyðarfirði – glíma og körfubolti. Hrafnkell Freysgoði á Breiðdalsvík – karate. Nánari tímasetningar má finna í tímatöflum viðkomandi íþróttafélaga.