Jaakko Laitinen & Väärä Raha á Cafe Rosenberg - Svavar Knútur hitar upp
Cafe rosenberg, , 14467 Potsdam Directions
Wed Nov 04 2026 21:00
Finnlandsvinir og aðdáendur Balkantónlistar á í Reykjavík (það gríðarstóra sniðmengi) geta glaðst heiftarlega miðvikudagskvöldið 4. nóvember næstkomandi, því þá mun finnska hljómsveitin Jaakko Laitinen & Väärä Raha leika sína fyrstu tónleika á Íslandi á nýopnuðu Café Rosenberg!
Jaakko Laitinen og vinir hans hafa síðan 2009 heillað áhorfendur vítt og breitt um Evrópu og eiga mikilli velgengni að fagna í heimalandinu og eins og allir vita kemur gott eitt frá Finnlandi.
Það er vinur Jaakko, Svavar Knútur, sem dregur þetta fríða föruneyti á skerið og mun hann, fyrir þrábeiðni Jaakkos, taka nokkur lög til upphitunar.
Kvöldið verður þó nær algerlega í höndum hinna dásamlegu Finna sem hafa marinerað sál sína í balkneskum spíra sem eimaður var í gömlum Trabant.
Aðgangseyrir inn á tónleikana er litlar 4.000 krónur og er miðasala á Stubb.is