Jóga-gönguhópurinn Freyja ... dagskrá haust-vetur
Sat Sep 12 2026 10:00
Jóga-dagsgöngur til að draga sig úr amstri daglegs lífs, njóta náttúrunnar, tengjast sér og náttúrunni betur, efla orku og bara njóta þess að vera og finna sinn styrk.
Kvennaferðir.
Göngurnar eru fimm á tímabilinu september til nóvember.
Svæðin framundan eru: Glymur, Hengilsvæði, við Þingvelli, Bláfjallasvæði og við sjó.
Þema ferðanna eru náttúran, kyrrð, gleði, núvitund. Róleg ganga upp brekkur og reglulegar pásur.
Nánari upplýsingar um upphafsstaði verður send til þátttakenda.
Jóga og hugleiðingar: Í göngunni er stoppað öðru hvoru fyrir stutt jóga, hugleiðslur, íhugun og dvöl í núvitund og slökun.
Skráning og upplýsingar eru hér: https://thinleid.is/jogadagsgongur