Jól og annað vesen!

Jól og annað vesen!

Segull 67 Brewery, Vetrarbraut 8-10, 580 Siglufjörður Directions

Sat Dec 05 2026 19:00

Forsala miða til 5. nóvember hafin!

Jól og annað vesen! 🎄🎤

Jólin eiga að vera tími friðar, gleði og notalegra samverustunda. En einhvern veginn endum við alltaf á því að hlaupa sveitt um bæinn, stressa okkur yfir jólagjöfunum, reyna að halda friðinn í fjölskyldunni og hafa áhyggjur af því hvort jólasveinarnir séu örugglega með allt á hreinu!

Hvenær urðu jólin eiginlega svona flókin? Og hver ákvað að desember ætti að vera bæði notalegasti og annasamasti mánuður ársins?

Sambýlisfólkið Svava Björk Ólafsdóttir og Bjarni Þór Bragason bjóða upp á stórskemmtilega jólasýningu þar sem uppistand, persónulegar sögur og lifandi tónlist fléttast saman.

Íslenskar jólahefðir, Grýla, Jólakötturinn, jólasveinarnir, fjölskyldulífið, maturinn, sykurinn og ekki síst rómantíkin í desember koma öll við sögu. Enda er af nógu að taka þegar kemur að jólunum!

Bjarni reynir að halda uppi fallegri jólastemningu með tónlistinni á meðan Svava veltir fyrir sér hvers vegna við gerum okkur þetta allt saman. Og hvort jólin væru kannski skemmtilegri ef við hættum að reyna að hafa þau fullkomin.

Jól og annað vesen! er kvöldstund full af hlátri, tónlist og kunnuglegum aðstæðum – fyrir alla sem elska jólin og líka þá sem byrja að ofanda um leið og fyrsta jólalagið heyrist í nóvember.

Komdu og hlæðu með okkur að öllu því yndislega veseni sem fylgir jólunum! 🎄

Miðasala á MOMENT: https://tickets.moment.is/event/jol-og-anna-vesen-27dscy