Jólaboð með Kötlunum

Jólaboð með Kötlunum

Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19, 101 Reykjavík Directions

Mon Nov 30 2026 20:00

Kötlurnar halda jólatónleika 30. nóvember þar sem töfruð verður fram hlýleg stemning og falleg lög. Lagavalið verður hljómfagurt og notalegt, með hæfilegri blöndu af andlegri örvun og ljúfu jólanuddi fyrir taugakerfið.

Jólaboðið er haldið á sérvöldum tíma, akkúrat þegar fólk er að síga í jólaskap en áður en jólaannríkið tekur völdin. Kötlurnar brúa þannig bilið milli hversdagsins og hátíðanna og leiða tónleikagesti mjúklega inn í heim kósýsokka, kakóbolla og konfekts.

Við bjóðum ykkur velkomin í jólaboð Katlnanna þar sem við leyfum jólunum að læðast að okkur.

Stjórnendur eru Hildigunnur Einarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir