Jólabókaflóðið með Katrínu Jakobsdóttur
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Wed Jan 20 2027 19:30
Taktu þátt í risastórum leshring undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur, þar sem ætlunin er að taka fyrir nokkrar fjölbreyttar bækur úr jólabókaflóðinu.
Jólabókaflóðið er leshringur þar sem við lesum saman nýleg skáldverk og ræðum sérkenni og inntak þeirra.
Á þessu fimm kvölda námskeiði er ætlunin að taka eitt skáldverk til umfjöllunar í hvert skipti. Við munum velja fjölbreytt verk. Þrjú af fimm skáldverkum verða kynnt fyrir fram en í fyrsta tíma munum við velja saman tvö til viðbótar. Tveimur höfundum verður boðið í heimsókn til að ræða við þátttakendur um verk sín. Kennari mun leiða umræðuna og setja verkin í fræðilegt samhengi og síðan geta þátttakendur tekið þátt í umræðunni eins og þeim hentar.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu verður fjallað um nokkrar af þeim nýju bókum sem komu út um jólin. Höfundar verða kynntir og verk þeirra sett í samhengi við stefnur og strauma í bókmenntum og samfélagsþróun.
Námskeiðið mun nýtast til að efla hvern og einn þátttakanda í að lesa meira og fleira en um leið verður leitast við að kynna ýmis greiningartæki bókmenntanna til að gera þátttakendur betur í stakk búna til að skilja skáldskap, samfélag og sjálfa sig.