Jólakransagerð með Láru- skráning nauðsynleg

Jólakransagerð með Láru- skráning nauðsynleg

Bókasafn Garðabæjar, Garðatorg 7, 210 Garðabær Directions

Thu Nov 19 2026 17:00

Skapaðu þinn eigin aðventukrans undir faglegri leiðsögn fagurkerans Láru Óskar Hjörleifsdóttur.

Á námskeiðinu færðu allan þann efnivið og þau verkfæri sem þarf til að útbúa veglegan og fallegan jólakrans. Unnið verður með 6-9 mismunandi tegundir af grænum greinum sem skreyttar verða með afskornum blómum og öðrum fallegum áherslum. Allur efniviður er valinn með það í huga að hann þorni fallega og haldi sér vel yfir hátíðirnar.

Þátttakendur geta valið á milli þess að útbúa borðkrans eða hurðarkrans. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg, aðeins áhugi á að skapa eitthvað fallegt fyrir jólin.

☕ Boðið verður upp á heitt kakó og smákökur svo þátttakendur geti notið notalegrar jólastemningar á meðan unnið er að kransagerðinni.

Efniskostnaður: 11.900 kr. á hvern þátttakanda og skráning er nauðsynleg á netfangið: asbjorgbj@gardabaer.is

Tryggðu þér pláss og komdu í notalega jólastemningu með skapandi kvöldstund á Bókasafni Garðabæjar.