JÓLASKÁLIN 2026 x MÚLABERG | AKUREYRI
Múlaberg Bistro & Bar, Hafnarstræti 87-89, 600 Akureyri Directions
Thu Dec 03 2026 17:00
🎄 JÓLASKÁLIN 2026 🥂
Jólaskálin er nýtt jólapartý á Múlabergi þar sem fyrirtæki, vinnustaðir og vinahópar koma saman, skála fyrir jólunum og njóta alvöru jólastemningar 🎄🥂
Hugmyndin er einföld: ekkert vesen, engin skipulagning, bara mæta – við sjáum um restina.
Jólaskálin er opin öllum en hentar sérstaklega vel minni fyrirtækjum, vinnustöðum og vinahópum sem langar að gera eitthvað skemmtilegt saman fyrir jólin.
Við fyllum salinn af jólatónlist, smáréttum og mismunandi börum þar sem hægt verður að rölta á milli, smakka jólaspritz, jólabjór og glögg, grípa sér jólasmárétti og njóta stemningarinnar.
✨ Á JÓLASKÁLINNI VERÐUR:
🍴 Jólasmáréttir
🍷 Glögg – með eða án áfengis
🍹 Jólaspritz, jólabjór & fleiri drykkir
🎧 DJ Darri þeytir jólaskífum
🎤 Villi Braga / Villi Vandræðaskáld kemur fólkinu í jólagírinn með tónlist og gamanmáli
🎄 Og auðvitað fullt af jólastemningu!
Salurinn verður settur upp með standandi og sitjandi borðum í bland, mismunandi drykkjarstöðvum og smáréttum – þannig að hægt sé að rölta á milli, fá sér í glas, grípa bita og njóta kvöldsins.
📅 Fimmtudagurinn 3. desember
⏰ 17:00–19:00
📍 Múlaberg Bistro & Bar | Hótel Kea
👉 Tryggið hópnum pláss tímanlega!
Nánari upplýsingar og bókanir á mulaberg.is!