Jólasöngveisla í Borgarfirði

Jólasöngveisla í Borgarfirði

Thu Dec 17 2026 20:00

Að frumkvæði Freyjukórsins efnum við til Jólasöngveislu í Borgarfirði. Með tónleikunum viljum við endurvekja fallega jólahefð í Borgarfirði þar sem kórar héraðsins koma saman og fylla kirkjuna af jólasöng og hátíðarstemningu.

Kórarnir sem fram koma eru Freyjukórinn, Söngbræður, Stemma, Gleðigjafar, Kvika og Kirkjukór Borgarneskirkju, allt kórar undir stjórn annað hvort Hólmfríðar Friðjónsdóttur eða Steinunnar Þorvaldsdóttur.

Markmið okkar er að hafa ókeypis aðgang að tónleikunum, svo sem flestir geti notið þessarar fallegu samverustundar í aðdraganda jóla og um þessar mundir er verið að leita til fyrirtækja í Borgarfirði hvort þau sjái sér fært um að styðja framtakið.