Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar 2026
Hjálmaklettur Menningarhús, Borgarbraut 54, 310 Borgarnes Directions
Sun Dec 06 2026 17:00
🎄✨ 10 ÁR AF JÓLAGLEÐI – KVEÐJUM MEÐ GLÆSIBRAG! ✨🎄
Það er komið að stórum tímamótum hjá Hljómlistarfélagi Borgarfjarðar! ❤️
Í ár höldum við jólatónleikana okkar í 10. sinn og um leið verða þetta síðustu tónleikarnir, a.m.k. í bili, í þeirri mynd sem við þekkjum í dag.
Frá árinu 2017 höfum við átt ótal yndislegar stundir saman. Tíu ár af tónlist, gleði, samveru og ógleymanlegum minningum.
Á bak við þessa jólahefð liggja óteljandi vinnustundir, ómetanleg samvinna og umfram allt einlæg ástríða fyrir tónlistinni. Tónleikarnir hafa frá upphafi verið byggðir upp af eldmóði og sjálfboðavinnu fólks sem hefur lagt hjarta sitt og sál í að skapa eitthvað fallegt fyrir samfélagið okkar.
Og það hefur svo sannarlega verið þess virði! ❤️
Á þessum tíu árum hafa fjölmargir frábærir tónlistarmenn og söngvarar stigið á svið með okkur og þið, kæru tónleikagestir, hafið átt stóran þátt í að gera þessa hefð að því sem hún er í dag.
Nú er komið að síðasta kaflanum í þessari fallegu jólahefð. Hvað framtíðin ber í skauti sér veit enginn, en eitt er víst – við ætlum að kveðja með glæsibrag! ✨
Þann 6. desember ætlum við að fylla Hjálmaklett af tónlist, gleði og sannkallaðri jólastemningu og fagna þessum tímamótum með ykkur.
🎶 10. Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar
📅 Sunnudaginn 6. desember 2026
🕔 Kl. 17:00 og 20:00
📍 Hjálmaklettur
🎟️ Forsala aðgöngumiða fer fram í Brúartorgi, Borgarnesi.
Miðaverð: 6.500 kr
❤️ Takk fyrir að vera hluti af þessari einstöku vegferð.
Við vonum innilega að þið komið og fagnið með okkur þessum tímamótum.
✨ Gerum þessa síðustu jólatónleika að ógleymanlegri stund saman! ✨
Heiðursgestir í ár verða þau Jónsi og Salka Sól!
Söngvarar:
Jón Jósep Snæbjörnsson
Salka Sól Eyfeld
Þóra Sif Svansdóttir
Orri Sveinn Jónsson
Eiríkur Jónsson
Aníta Daxa
Ungar og upprennandi stjörnur úr Listaskóla Borgarfjarðar
Hljómsveit:
Gunnar Reynir Þorsteinsson
Birgir Þórisson
Friðrik Sturluson
Pétur Valgarð Pétursson
Hljóðmaður:
Baldvin A B Aalen