Jónas Sig & Lúðrasveit Þorlákshafnar Þorlákskirkju
Thu Oct 15 2026 20:00
Miðasala: www.jonassig.is
Jónas Sig og Lúðrasveit Þorlákshafnar blása til tónleika í Þorlákskirkju þann 15.október næstkomandi þar sem platan Þar sem himin ber við haf verður flutt í heild sinni.
14 ár eru liðin frá því platan kom út en þá hélt hópurinn þrenna uppselda útgáfutónleika í Reiðhöll Guðmundar í Þorlákshöfn, þar sem samtals 1200 manns komu og sáu.
Hópurinn hélt glæsilega tónleika í Háskólabíói árið 2022 en þá fagnaði platan 10 ára afmæli. Nú er komið að því að snúa aftur heim með plötuna, nánar tiltekið á staðinn þar sem platan var tekin upp, í Þorlákskirkju. Hljómurinn í Þorlákskirkju er einkar fagur og vel við hæfi að flytja plötuna í þessu hlýlega og fallega rými með útsýni út á haf. Hafið er einmitt þema plötunnar svo hér verða öll skilningavit kitluð.
Ásamt Jónasi Sig og Lúðrasveit Þorlákshafnar koma fram bassaleikarinn Guðni Finnsson, Arnar Þór Gíslason spilar á trommur og Baldvin Hlynsson leikur á hljómborð.
Þetta er viðburður sem þið viljið ekki láta framhjá ykkur fara.
Miðasala: www.jonassig.is