Kakókyrrð
Bildshofdi 16 (Bakhús), Reykjavík, Iceland, Bíldshöfði 16, 110 Reykjavík Directions
Sun 13.09.2026 11:00
🤎✨ KAKÓKYRRÐ – 90 MÍNÚTUR FYRIR ÞIG 🤎
SUNNUDAGUR 13 SEPT KL 11
Kannski þarftu ekki að gera meira.
Kannski þarftu bara að hægja á og hlusta.
Kakókyrrð er 90 mínútna mjúk og nærandi stund þar sem við skiljum amstur dagsins eftir fyrir utan og snúum athyglinni inn á við.
Við byrjum á bolla af hreinu, hlýju kakói.
Kakóbaunin á sér langa sögu í athöfnum tengdum nærveru, tengingu og íhugun. Við drekkum kakóið hægt og með meðvitund og leyfum því að marka upphafið að ferðinni inn á við. 🤎
✨ Næmni – innsæi – þriðja augað
Í kyrrðinni gefum við okkur rými til að hlusta á næmnina og innsæið.
Við vinnum mjúklega með þriðja augað, sem í ýmsum andlegum hefðum er tengt innsæi, innri sýn og þeirri visku sem býr innra með okkur.
Þú færð einnig að draga fallegt spil með boðskap. Stundum birtast orð sem snerta eitthvað innra með okkur – eða minna okkur einfaldlega á það sem við vorum búin að gleyma.
🌿 Kyrrð og heilun
Heilun þarf ekki alltaf að snúast um að laga eitthvað.
Stundum byrjar hún einfaldlega þegar við hægjum á, öndum og gefum líkamanum leyfi til að sleppa takinu.
Ég leiði þig í gegnum öndun, hugleiðslu með aðferðum Jóga Nidra þar sem þú færð að síga dýpra inn í kyrrðina.
Að lokum fær hljómur kristalsskálanna að fylla rýmið og styðja við djúpa slökun, mýkt og innri tengingu. 🎶
Í Kakókyrrð fléttast saman:
🤎 Hreint kakó og nærvera
✨ Spil með boðskap
👁️ Næmni, innsæi og þriðja augað
🌿 Öndun og hugleiðsla
🌙 Jóga Nidra og djúpslökun
🎶 Tónheilun með kristalsskálum
🤍 Rými fyrir kyrrð, tengingu og heilun
Um mig
Ég heiti Kristín Snorradóttir og hef starfað með fólki í um 25 ár.
Ég er PCC markþjálfi, jógakennari og jógameðferðaraðili, Jóga Nidra- og hugleiðslukennari og dáleiðari.
Í vinnu minni hef ég sérstakan áhuga á kyrrðinni, taugakerfinu, næmninni og því að skapa rými þar sem við getum lagt frá okkur hlutverkin okkar um stund og hlustað inn á við.
Í Kakókyrrð held ég utan um rýmið og leiði þig mjúklega í gegnum stundina.
Þú þarft ekki að kunna neitt.
Þú þarft ekki að vera á neinum sérstökum stað í lífinu.
Þú mátt bara koma eins og þú ert. 🤎
Í lok tímans er rými til að deila upplifun ef vilji er ti
l
Hvar og hvenær:
Yogasmiðjan Bíldshöfði 16, 2 hæð
Sunnudagur 6 sept kl 11 til 12.30
⏳ 90 mínútur
💰 5.500 kr.
✨ Takmarkaður fjöldi plássa
Skráning: kristinsnorra@gmail.com
Þegar þú hægir á geturðu farið að heyra það sem kyrrðin hefur að segja. 🤎
Kristín Snorradóttir
Performers
-
Heilsusetur FagvitundarVelkomin á Heilsusetur Fagvitundar
Við bjóðum upp á rými fyrir þá sem vilja rækta heilsu sína, innri ró og vellíðan í amstri daglegs lífs.
Markþjálfun, jóga, jóga nidra, hugleiðsla, dáleiðsla, námskeið og fræðsla.
-
Kristín Snorradóttirhttps://www.fagvitund.is/