KIRAC 32 — Reykjavík

KIRAC 32 — Reykjavík

Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Directions

Thu Nov 19 2026 20:30

KIRAC 32 í þriðja sal Bíó Paradísar

KIRAC (Keeping It Real Art Critics) er hollenskur listahópur sem hefur um árabil vakið athygli fyrir framsæknar heimildarmyndir um listir og listaheiminn. Þann 19. nóvember gefst Íslendingum í fyrsta skipti færi á að sjá KIRAC á hvíta tjaldinu en þá verður 32. mynd hópsins, The Anti-Friend, sýnd í þriðja sal Bíó Paradísar.

The Anti-Friend er að sögn KIRAC um vináttu, peninga og list. Í myndinni er fjallað um stöðu múslima í vestrænum samfélögum og hvernig listaheimurinn hagar sér í dag. Margir góðkunningjar KIRAC koma fram í myndinni, svo sem Bart Jansen lagaprófessor, Philip van der Hurk maecenas hópsins og listamaðurinn Tarik Sadouma.

Myndin sjálf er um 100 mínútur að lengd og fyrir sýningu hennar verður haldið stutt erindi um hópinn. Aðeins er pláss fyrir 43 í salnum og því eru áhugasamir hvattir til að tryggja sér miða hið snarasta.

Viðburðurinn er á vegum Houellebecq-félagsins.

Heimasíða KIRAC er kirac.com.