KLAK health kynningarviðburður

KLAK health kynningarviðburður

CCP - Gróska, Bjargargata 1, 101 Reykjavík Directions

Fri Sep 11 2026 12:00

KLAK health er viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki í heilsutækni.

Verið velkomin á kynningarviðburðinn sem fer fram 11. september milli 12:00 - 13:00 í Mýrinni í Grósku.

KLAK health er fimm vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja í heilsutækni, allt frá stafrænum tæknilausnum yfir í lækningatækni, líftækni og lyfjaþróun.

Hraðallinn veitir þátttakendum aðgang að sérhæfðri fræðslu, leiðsögn frá sérfræðingum og tengslum við fjárfesta og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.

Allt að tíu fyrirtæki verða valin til þátttöku og fá aðgang að skrifstofuaðstöðu í Grósku á meðan á hraðlinum stendur. Þátttaka í hraðlinum er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Viðburðurinn er opinn öllum og boðið verður upp á léttar veitingar.