Kóreska stafrófið: Að lesa og skrifa Hangul
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Wed Feb 03 2027 17:00
Hangul er eitt einfaldasta stafróf heims. Viltu læra að lesa kóresku á örfáum tímum?
Á þessu stutta og aðgengilega námskeiði læra þátttakendur undirstöðuatriði kóreska stafrófsins, Hangul. Farið verður yfir uppbyggingu stafanna, hljóðkerfið og hvernig stafirnir tengjast í atkvæði. Lögð er áhersla á virkni í tímum, æfingar og að þátttakendur geti strax byrjað að lesa einföld orð og setningar. Að námskeiði loknu geta þátttakendur lesið Hangul og hafa grunnskilning á framburði kóresku.
Enginn undirbúningur er nauðsynlegur fyrir fyrsta tímann og ekki er þörf á að koma með fartölvu, en mælt er með að þátttakendur taki með sér stílabók og penna til að æfa skrift. Þátttakendur fá öll kennslugögn í tímum.
Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á kóreskri tungu og menningu, hvort sem er vegna tónlistar, kvikmynda, ferðalaga eða annars. Engar forkröfur eru gerðar og námskeiðið hentar byrjendum.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Uppbyggingu og kerfi Hangul stafrófsins.
- Framburð kóreskra samhljóða og sérhljóða.
- Myndun atkvæða og lestur einfaldra orða.
- Stuttar æfingar í lestri og ritun.
Ávinningur þinn:
- Að geta lesið Hangul sjálfstætt.
- Að skilja grunnatriði i framburði kóresku.
- Að öðlast traustan grunn fyrir frekara nám í kóresku.