Kótilettukvöld Samhjálpar 2026
Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík Directions
Wed 21.10.2026 19:00
Kótilettukvöld Samhjálpar 2026
Komdu og eigðu skemmtilegt kvöld með okkur á árlegu Kótilettukvöldi Samhjálpar, sem verður haldið 21. október 2026 á Hilton Reykjavík Nordica. Kokkar úr kokkalandsliðinu sjá um að elda gómsætar kótilettur og boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með skemmtilegri tónlist, happdrætti og óvæntum uppákomum. Athugið að Kótilettukvöldið er áfengislaus viðburður.
Allur ágóði kvöldsins rennur til starfsemi Samhjálpar. Í rúma hálfa öld hefur Samhjálp veitt fólki í viðkvæmri stöðu stuðning og aðstoð, meðal annars einstaklingum sem glíma við fátækt, félagslega einangrun og afleiðingar langvarandi fíknivanda.
Samhjálp rekur meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot, þar sem pláss er fyrir 30 einstaklinga í meðferð við fíknisjúkdómum, Kaffistofu Samhjálpar, þar sem um 100 þúsund máltíðir eru gefnar á ári, auk áfanga- og stuðningsheimila í Reykjavík og Kópavogi.
Með þátttöku í Kótilettukvöldinu styður þú við mikilvægt starf Samhjálpar og hjálpar okkur að halda áfram að vera til staðar fyrir þau sem þurfa á aðstoð að halda. Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum.