Krakkakirkja í Ísafjarðarkirkju

Krakkakirkja í Ísafjarðarkirkju

Ísafjarðarkirkja, Sólgata 1, 400 Ísafjörður Directions

Wed Dec 02 2026 16:30

Krakkakirkjan eru skemmtilegar og notalegar samverur fyrir börn og fjölskyldur. Þar syngjum við saman, heyrum sögur úr Biblíunni, biðjum, leikum og lærum um vináttu, kærleika og trú.

Markmiðið er að börnin upplifi kirkjuna sem hlýjan og glaðan stað þar sem þau fá að vera þau sjálf, spyrja spurninga og eiga góða stund saman. ❤️