Kreatín og prótein: Hvað segja vísindin?

Kreatín og prótein: Hvað segja vísindin?

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Jan 26 2027 19:30

Kreatín, próteinduft og próteinríkar vörur eru víða markaðssettar sem lykill að betri heilsu og árangri, en hver þarf raunverulega á þeim að halda?

Á þessu námskeiði verður farið yfir hvað vísindin segja, hvaða fullyrðingar standast skoðun og hvenær vel samsett mataræði dugar fullkomlega.

Áhugi á kreatíni, próteini og öðrum fæðubótarefnum hefur aukist mikið á síðustu árum. Á sama tíma flæða upplýsingar um áhrif þeirra um samfélagsmiðla, auglýsingar og netmiðla, sem getur gert erfitt að greina á milli vísindalegra staðreynda og markaðssetningar.

Á námskeiðinu verður fjallað um próteinþörf við mismunandi aðstæður og hvernig aldur, hreyfing og styrktarþjálfun hafa áhrif á hana. Skoðað verður hvort og hvenær þörf sé á próteindufti eða öðrum próteinríkum vörum og hvernig hægt er að uppfylla próteinþörf með venjulegu mataræði.

Einnig verður farið yfir rannsóknir á kreatíni, meðal annars áhrif þess á líkamlega frammistöðu, vöðvastyrk og aðra þætti sem hafa verið rannsakaðir. Fjallað verður um hvað rannsóknir sýna með nokkurri vissu og hvar enn skortir traustar niðurstöður. Sérstök áhersla verður lögð á að greina á milli vísindalegra niðurstaðna, viðurkenndra heilsufullyrðinga og fullyrðinga sem oft birtast í markaðsefni og á samfélagsmiðlum.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta þekkingu sem gerir þeim betur kleift að taka upplýstar ákvarðanir um notkun kreatíns, próteins og próteinvara og að miðla traustum upplýsingum til annarra.

Námskeiðið hentar heilbrigðisstarfsfólki, þjálfurum, íþróttakennurum og öðrum sem starfa við heilsueflingu, hreyfingu eða ráðgjöf um mataræði. Einnig hentar það áhugasömum almenningi sem vill öðlast betri þekkingu á hvenær bætiefni geta verið gagnleg og hvenær vel samsett mataræði er nægjanlegt.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Próteinþörf fullorðinna og hvernig hún breytist með aldri og hreyfingu.
  • Próteinþörf fólks sem stundar styrktar- og íþróttaþjálfun.
  • Próteingjafa í venjulegu mataræði og hvenær próteinduft getur verið gagnlegt.
  • Heilsufullyrðingar sem má nota um kreatín og prótein.
  • Öryggi og skynsamlega notkun kreatíns og próteinvara.
  • Mikilvægi heildarmataræðis, nægrar orku og annarra næringarefna fyrir heilsuna.

Ávinningur þinn:

  • Þú getur betur metið hvenær próteinbætiefni geta verið gagnleg og hvenær þeirra er ekki þörf.
  • Þú öðlast skilning á því hvaða áhrif kreatín hefur á heilsu samkvæmt fyrirliggjandi rannsóknum.
  • Þú getur betur greint viðurkenndar heilsufullyrðingar frá fullyrðingum sem byggja á veikari vísindalegum grunni.
  • Þú öðlast þekkingu á því hvaða mataræði styðja best við góða heilsu.

Kennslufyrirkomulag

Enginn sérstakur undirbúningur er nauðsynlegur fyrir námskeiðið, en þátttakendur fá tölvupóst áður en það hefst með upplýsingum um vefsíður þar sem hægt er að nálgast lesefni. Kennslan byggir á fyrirlestri, dæmum úr rannsóknum og umræðum.