Kveðjuhóf Steindórs

Kveðjuhóf Steindórs

Blue höllin, Sunnubraut 34, 230 Keflavík Directions

Thu Nov 19 2026 18:00

Steindór Gunnarsson þarf vart að kynna fyrir sundfólki! Við í ÍRB höfum verið svo heppin að hafa haft Steindór sem þjálfara hjá félaginu til fjölda áratuga og hefur hann á þeim tíma verið stór hluti af sundlífi ótal sundmanna.

Með áralangri reynslu, mikilli elju og ómetanlegu starfi hefur Steindór sett mark sitt á ÍRB sundhreyfinguna á Íslandi og átt stóran þátt í þroska og árangri fjölda sundmanna, bæði innan og utan laugar.

Nú langar okkur að koma saman til þess að kveðja og heiðra Steindór fyrir allt sem hann hefur gert fyrir félagið og sundmennina í gegnum tíðina.

Við hvetjum alla fyrrverandi og núverandi sundmenn, foreldra og aðra sem hafa átt samleið með Steindóri í gegnum tíðina til að mæta og taka þátt í þessari stund með okkur!

Endilega látið orðið berast 🥳

Performers