Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Suðurlands í Nýheimum

Kynningarfundur um Uppbyggingarsjóð Suðurlands í Nýheimum

Hornafjörður Cultural Center, Litla brú 2, 780 Höfn Directions

Tue Sep 22 2026 20:00

Uppbyggingarsjóður Suðurlands veitir íbúum á Suðurlandi tækifæri til þess að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Hann hefur nú þegar opnað, 16. september og stendur opinn til 21. október kl 14.

Þriðjudaginn 22. september heldur Eva Bjarnadóttir byggðaþróunarfulltrúi kynningu í fundarsalnum í Nýheimum, þar sem hún fer yfir Sóknaráætlun Suðurlands og Uppbyggingarsjóðinn. Þar mun gefast tækifæri til þess að spyrja spurninga og fræðast um sjóðinn.

Öll velkomin!

Athugið að kynningin fer fram á íslensku. Kynning á ensku verður streymt síðar, en enskumælandi íbúum er velkomið að mæta á fundinn og spyrja spurninga. Tekið er við umsóknum í sjóðinn á ensku.