Landnáma á Landnámssýningunni • Þín fornaldar frægð eftir Illuga Jökulsson, útgáfuhóf.

Landnáma á Landnámssýningunni • Þín fornaldar frægð eftir Illuga Jökulsson, útgáfuhóf.

The Settlement Exhibition, Aðalstræti 16, 101 Reykjavík Directions

Thu Nov 19 2026 17:30

Hvar er betra að fagna nýrri bók um Landnámu en á Landnámssýningunni við Aðalstræti?

Fimmtudaginn 19. nóvember kl. 17:30 bjóða Illugi Jökulsson og bókaútgáfan Drápa til útgáfuhófs á Landnámssýningunni, Aðalstræti 16 í Reykjavík (gengið inn á horni Aðalstrætis og Túngötu). Við ætlum að fagna útgáfu bókarinnar; Þín fornaldar frægð og þeim góðu móttökum sem bókin hefur þegar fengið.

Hvaðan kom fólkið sem settist hér að? Hverjir réðu för og hverjir voru fluttir hingað nauðugir? Illugi tekur Landnámu sér í hönd og rýnir í sögurnar sem við höfum sagt um upphaf byggðar á Íslandi.

Við bjóðum upp á veitingar, bókin verður til sölu á staðnum á sérstöku afsláttarverði, Illugi áritar og öllum er velkomið að fagna með okkur. Taktu með þér góðan vin og komdu í útgáfuhóf með þúsund ára sögu undir fótum!