Laugardagsleiðangur - Tölvuleikir með gervigreind

Laugardagsleiðangur - Tölvuleikir með gervigreind

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Sat Nov 21 2026 10:00

Hvernig verður tölvuleikur til með hjálp gervigreindar?

Á þessu námskeiði skoðum við hvernig gervigreind getur teiknað persónur, lífgað þær við, samið hljóð og hjálpað til við að setja saman leik, svo þú getir haldið áfram heima með þína eigin hugmynd.

Gervigreind hefur gjörbreytt því hvernig tölvuleikir verða til. Það sem áður krafðist heils teymis af forriturum, teiknurum og tónlistarfólki getur nú einn hugmyndaríkur einstaklingur gert á skömmum tíma með réttum verkfærum. Á námskeiðinu kynnast þátttakendur þeim aðferðum sem gera kleift að breyta hugmynd í frumgerð af tölvuleik með hjálp gervigreindar.

Farið verður yfir aðferðir til að búa til efni í leiki með gervigreind: myndir af persónum og umhverfi, hvernig lífga má persónur við með hreyfimyndum, hljóð og tónlist og jafnvel stutta sögu eða samtöl. Sýnt verður hvernig lýsa má því sem maður vill fá með orðum og bæta niðurstöðuna skref fyrir skref, og hvernig setja má slíkt efni saman í einfaldan leik.

Námskeiðið byggir á sýnikennslu og dæmum sem ungmenni og forráðamenn fylgjast með saman. Enginn þarf að kunna að forrita fyrirfram. Markmiðið er að þátttakendur öðlist skilning og fái í hendur þau verkfæri sem þarf til að hefja gerð eigin tölvuleikja. Að námskeiði loknu fá þátttakendur glærur og leiðbeiningar svo þeir geti haldið áfram heima og byrjað á sínum eigin leik.

Námskeiðaröðin Laugardagsleiðangur er ætluð ungmennum 10 ára og eldri í fylgd forráðamanna. Með hverri skráningu fullorðins fylgir aðgangur fyrir 1 – 2 ungmenni á aldrinum 10 – 17 ára. Athugið að námskeiðið er ekki ætlað börnum yngri en 10 ára. Vinsamlegast skráið í athugasemdareit við skráningu nöfn og fæðingarár ungmennanna sem koma með.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvernig gervigreind er að breyta tölvuleikjagerð.
  • Gerð mynda af persónum og umhverfi með gervigreind.
  • Hvernig lífga má persónur við með hreyfimyndum með aðstoð gervigreindar.
  • Gerð hljóða, tónlistar og sögu fyrir leiki.
  • Hvernig lýsa má hugmynd þannig að gervigreind skili góðri niðurstöðu.
  • Hvernig setja má efnið saman í einfaldan, spilanlegan leik.

Ávinningur þinn:

  • Skilningur á því hvernig gervigreind nýtist í tölvuleikjagerð og skapandi vinnu.
  • Yfirsýn yfir verkfæri sem búa til myndir, hreyfimyndir og hljóð fyrir leiki.
  • Betri færni í að lýsa hugmyndum fyrir gervigreind og bæta niðurstöðurnar.
  • Innsýn í hvernig tölvuleikir eru settir saman.
  • Glærur og leiðbeiningar til að byrja á eigin leik heima.