Leirsmiðja með Antoníu Berg – Berunes
Berunes, Berunes, Berufjörður
Sat Oct 03 2026 11:00
Verið hjartanlega velkomin á barnanámskeið í leirvinnustofu Antoníu á Berunesi, þar munum
við vinna með íslenskan leir, þjóðsögur og sköpum austfirskra vætti.
Við byrjum á því að ganga að læknum sem líður framhjá bænum og sækjum leir og leitum að
kristöllum. Síðan höldum við í vinnustofuna og búum til okkar eigin ævintýraverur, til dæmis
dreka, nykur og tröll með innblæstri frá sögum af svæðinu.
Ég mun lesa nokkrar stuttar sögur úr bókinni Dvergasteinn til að kveikja hugmyndir og við
gerum tilraunir með íslenskan leir og blanda hann með steinleir. Í smiðjunni verður einnig
stutt hlé þar sem boðið verður upp á te eða heitt súkkulaði og ferska ávexti.
Að smiðjunni lokinni tekur um 2–3 vikur að brenna verkin og verður hægt að sækja þau
þegar þau eru tilbúin.
Lengd:2 klukkustundir
Dagskrá:
- Móttaka og kynning
- Ganga að læknum til að safna leir og leita að kristöllum
- Þjóðsaga úr Dvergasteini
- Leir mótun ævintýravera
- Hlé með tei/heitu súkkulaði og ávöxtum
- Haldið áfram að skapa og verurnar skoðaðar eftir námskeiðið