Lesbíur óskast - útgáfuhóf!

Lesbíur óskast - útgáfuhóf!

Salka bókabúð, Hverfisgata 89, 101 Reykjavík Directions

Fri Nov 13 2026 20:00

Þér er boðið í útgáfuhóf!

Í tilefni útgáfu bókarinnar Lesbíur óskast eftir Elísabetu Thoroddsen verður blásið til útgáfuhófs í bókabúð Sölku, Hverfisgötu 89-93, föstudaginn 13. nóvember kl 20:00.

Höfundur les og áritar bækur, léttar veitingar verða í boði og

bókin að sjálfsögðu á útgáfutilboði. Við lofum stuði og stemningu því hljómsveitin Ukulellur mun taka nokkur lög!

Hlökkum til að sjá ykkur!

Um bókina:

Þegar Hlín vaknar skelþunn á miðjum laugardegi rifjast upp fyrir henni

að hún á von á fimm bláókunnugum lesbíum í mat um kvöldið. Hlín er að

skilja við eiginmann sinn og nýflutt í litla kjallaraholu sem er í

rúst. Hún kann ekki að elda, hefur ekki efni á víni með matnum og

efast um allar ákvarðanir sem hún hefur tekið í lífinu. Svo kann hún

ekkert að tala við lesbíur.