Lestrarþjálfun og félagsfærni - mikilvægt veganesti við upphaf grunnskólagöngu
Hlégarður, 2 Háholt, 270 Mosfellsbær Directions
Thu Nov 12 2026 19:30
Fimmtudaginn 12. nóvember frá kl. 19:30-21:00 verða Elvar Jónsson leiðtogi farsældar barna og Kristín Edda Guðmundsdóttir kennsluráðgjafi með fræðslu fyrir foreldra nemenda 1. bekkja í grunnskólum Mosfellsbæjar.
Upphaf grunnskólagöngunnar markar mikil tímamót í lífi barna og foreldra. Börnin takast á við nýjar áskoranir, þróa og mynda vináttutengsl og halda áfram að byggja á þeim grunni sem lagður hefur verið varðandi málþroska og læsi á leikskólaárunum. Góð félagsfærni er mikilvæg forsenda fyrir góðri líðan, jákvæðum samskiptum og árangursríkri þátttöku í skólastarfinu , rétt eins og regluleg lestrarþjálfun er mikilvægur grundvöllur fyrir áframhaldandi námi. Í hvoru tveggja gegna foreldrar lykilhlutverki.
Á fyrirlestrinum verður því fjallað um hlutverk foreldra þegar kemur að lestrarþjálfun og félagsfærni og veittar hagnýtar leiðbeiningar um hvernig styðja má við börnin í þessum efnum. Markmiðið er að foreldrar fari heim með hagnýt verkfæri til að styðja við þroska og skólagöngu barna sinna.
-----
Foreldraskóli Mosfellsbæjar er verkefni sem hleypt er af stokkunum haustið 2026 og er hluti af Samskiptasáttmála Mosfellsbæjar. Foreldraskólinn felur í sér árlega fræðslu fyrir foreldra sem miðast við aldur barna þeirra. Mælst er til þess að allir foreldrar viðkomandi aldurshóps sæki þá fræðslu sem boðið er upp á hverju sinni.